Verkefnin

Hér fyrir neðan er hægt að sjá yfirlit yfir útboðs- og eigin verk Þarfaþings allt frá árinu 2002.

Skógarvegur 4 & 10

2023

Þarfaþing er að hefja vinnu við uppsteypu og fullnaðar frágang að innan og utanhús á tveimur fjölbýlishúsum með 87 leiguíbúðum fyrir 60 ára og eldri. Verkaupi er Naustavör fyrir hönd Sjómannadagsráðs, Verkefnið er loka áfangi uppbyggingar leiguíbúða fyrir 60 ára og eldri sem tengjast þjónustumiðstöðinni Sléttunni við Sléttuveg í Reykjavík. Áætluð verklok eru seinni hluta árs 2024.

Lautargata 6

2022

Þarfaþing hefur hafið byggingu á 19 íbúða fjölbýlishúsi við Lautargötu 6 í norðurhlíð Urriðaholts. Lautargata 6 er 5 hæða lyftuhús með íbúðum frá um 66-139m². Lokaður bílakjallari fyrir 9 íbúðir.

Kinngargata 43-47

2021

Þarfaþing hefur hafið byggingu á 28 íbúðum við Kinnargötu 43-47. Annarsvegar er um að ræða 15 íbúðir við Kinnargötu 43-45 og hinsvegar 13 íbúðir við Kinnargötu 47.

Hraungata 21-23

2020

Þarfaþing hefur lokið við byggingu á 24 íbúðum að Hraungötu 21-23 í Urriðaholti. Um er að ræða tvö fjölbýlishús, annars vegar 11 íbúðir á Hraungötu 21 og hinsvegar 13 íbúðir við Hraungötu 23. Allar íbúðir eru seldar.

Urriðaholtsstræti 28

2019

Þarfaþing reisti 12 íbúða fjölbýlishús við Urriðaholtstræti 28 í Urriðaholtinu. Verklok voru 2019.

Hjúkrunaraheimili við Sléttuveg

2019

Sjómannadagsráð og dótturfélag þess Ölduvör vinna í samvinnu við Reykjavíkurborg að uppbyggingu fyrir aldraða við Sléttuveg. Hjúkrunarheimilið er fyrsti áfangi í stærri uppbyggingu Sjómannadagsráðs á sömu lóð sem m.a. felur í sér byggingu þjónustumiðstöðvar og íbúða fyrir aldraða. Þarfaþing var hlutskarpast í nóvember síðastliðinn í opnu útboði. Verk þetta er uppá 1137 milljónir og áætlað er að verkið hefjist í desember.

Mathöll Kringlunni

2019

Framkvæmdir standa nú yfir á vesturhorni stjörnutorgsins þar sem Þarfaþing byggir nýja mathöll fyrir Kringluna. Áætluð verklok eru á fysta ársfjórðungi 2019.

Next Kringlunni

2018

Þarfaþing sá um að standsetja verslunina Next á nýjum stað 2.hæð í Kringlunni. Verkkaupi: Reitir.

 

New Yorker Kringlunni

2018

Þarfaþing hefur ný lokið við að innrétta 800 fm tískuvöru verslun. Veslunin New Yorker í Kringlunni. Þarfaþing sá um alla smíða vinnu ásamt verkstjórn á svæðinu.

WC gangur Kringlunni

2018

Þarfaþing sá um endurgerðir á klósettgangi Kringlunnar á 2.hæð.

Hanz Kringlunni

2018

Þarfaþing lauk í júni 2018 við að innrétta herrafataverslunina Hanz í Kringlunni. Þarfaþing sá um alla smíða vinnu ásamt verkstjórn á svæðinu.

Dalskóli 2.áfangi

2018

Þarfaþing var lægst í útboði á innanhúsfrágangi í 2.áfanga Dalskóla. Verkefni þetta var uppá 1200 milljónir og felst verkið í fullnaðar frágangi innanhúss. Verklok 2019.

Holtsvegur 15-17

2018

Þarfaþing reisti 16 íbúða fjölbýlishús í Urriðaholti, Garðabæ. Íbúðirnar fóru í sölu í byrjun árs 2018.

HM Kringlunni

2017

Lýsing: Þarfaþing standsetti nýja verslun H&M í Kringlunni, 2.hæð. Verkkaupi: Reitir. Verk hefst: Mars 2017.

Endurnýjun Ásgarðslaugar

2017

Þarfaþing hefur lokið endurnýjun á Ásgarðslaug, búningsklefum og pottum ásamt flísalögn í laugarkari. Verkefni þetta var uppá 1 milljarð.

Þingvellir Þjónustumiðstöð

2017

Þarfaþing hefur lokið við viðbyggingu á 1100 fm. þjónustumiðstöð á Þingvöllum ásamt því að gera ný bílastæði við þjónustmiðstöðina.

Bíógangur Kringlunnar

2017

Þarfaþing  samdi við Rekstrarfélag Kringlunnar um endurnýjun á gangi 3ju hæðar (bíógangi).

Toyr R Us

2017

Þarfaþing vinnur að standsetningu nýrrar verslunar Toys R Us í Kringlunni.

Hótel við Hafnarstræti

2017

Hótel við Hafnarstræti 17-19. Verkkaupi: Suðurhús ehf. Lýsing: Þarfaþing sá um uppsteypu og frágang utanhúss á nýju hóteli við Hafnarstræti 17-19, 101 Reykjavík.

Jákvæðnihús við Landspítalann

2017

Jákvæðnihús við landspítalann. Verkkaupi: Gjöf til þjóðar, sjálfseignarst. og Landspítalinn. Lýsing: Þarfaþing kom upp sérhannaðari nýbyggingu við Hringbraut fyrir Jáeindaskanna. Byggingin er á lóð Landsspítalans.

Boss Kringlunni

2016

Þarfaþing vinnur nú að breytingum í verslaun Boss í Kringlunni.

Glæsibær Læknastofur

2016

Eggert Jónsson framkvæmdarstjóri Þarfaþings afhendir Snorra lykla af ný endurinnréttaðri aðstöðu sem aðlöguð var að þeirra starfsemi.

Dalaskóli 1.áfangi

2016

Dalskóli 1.áfangi, frágangur inni. Þarfaþing hf. hefur nú lokið vinnu við Dalskóla og skilað verkinu 16 dögum fyrir umsaminn lokatíma. Verkið fellst í fullnaðarfrágangi inni. Um er að ræða nýja  leikskólabyggingu á reits Dalskóla í Úlfarsdal.

Hótel Ísland

2015

Þarfaþing hefur lokið vinnu við endurbætur á 7. hæð Ármúla 9 fyrir Hótel Ísland.

Timbuk2 Kringlunni

2015

Þarfaþing sá um að standsetja Timbuk2 sem er sérverslun fyrir hjólreiðafólk í Kringlunni.

Sætún 1

2014

Húsfélagið Sætúni 1 hefur samið við Þarfaþing um 250 milljón króna verkefni. Þarfaþing sér um uppsteypu og frágang utanhúss á fjögra hæða viðbyggingu ásamt því að að byggja fjórðu hæðina ofan á norðurhús. Áætluð verklok eru í júlí 2014. Þarfaþing voru lægstir í útboði á innanhúsfrágangi Sætúns 1 Verkssamningur er uppá rúmmar 200 milljónir. Verklok eru áætluð í byrjun október. Verkið felst í fullnaðarfrágangi innanhús.

Farfuglaheimil Bankastræti

2014

Þarfaþing hefur tekið Bankastræti 7 í gegn frá grunni og innréttað sem farfuglaheimili. Verki lokið.

Farfuglaheimili Ásbrú

2014

I-hostel samdi við Þarfaþing um lagfæringar og aðlögun húsnæðis á Keilissvæðinu að þörfum farfuglaheimilis. Verkinu er lokið

Nesvellir Hjúkrunarheimili

2014

Reykjanesbær samdi við Þarfaþing um að innrétta 60 nýjar þjónustuíbúðir fyrir aldraða á Nesvöllum. Verk upphæðin er um 540 milljónir króna. Verkþættir snúa að öllu innan hús svo sem trésmíði, raflögnum, pípulögnum og málun. Áætluð verklok eru um miðjan mars.

Þakkantur Kringlan

2013

Rekstrarfélag Kringlunnar samdi við Þarfaþing um endurnýjun á þakkanti á austurhlið Kringlunnar. Um var að ræða framhaldsverk af því sem áður hafði verið unnið að norður og suðurhlið Kringlunnar. Verkinu er lokið.

Rebook Fitness

2013

Þarfaþing sá um uppsetningu milliveggja í nýrri líkamsræktarstöð við Holtagarða, Reebok Fitnes. Verkið var unnið fyrir Reiti ehf.

Hótel Borg Pósthússtræti

2013

Þarfaþing vinnur nú við að skipta um front fyrir Hótel Borg ehf. í Pósthússtræti. Verkinu er lokið.

Vodafone Smáralind

2013

Þarfaþing hefur nú lokið við breytingar í verslun Vodafone í Smáralind.

Íslandspóstur Sólvallagötu

2013

Þarfaþing vinnur við breytingar í dreifingarstöð Íslandspóst við Sólvallagötu 79.

Sendiráð Bandaríkjanna

2012

Samið hefur verið við Securitas um breytingar í Skeifunni 8.

Borgartún 21

2012

Þarfaþing vinnur að breytingum innanhús fyrir Landfestar ehf. í Borgartúni 21. Þar sér Þarfaþing um alla verkþætti þe. smíðar, loftræstingu, pípulagir, málningarvinnu, raflagnir, flísalögn, blikksmíði ofl.

Sendiráð Bandaríkjanna

2012

Þarfaþing hefur lokið við að endurbyggja sólstofu hjá Bandaríska Sendiráðinu við Laufásveg.

Borgartún 20

2011

Þarfaþing vinnur nú fyrir Reginn ehf. að breytingu á skrifstofum í Borgartúni 20. Þarfaþing sér um alla verkþætti, þe. Smíðavinnu, raflagnir, málningarvinnu, dúkalögn ofl.

Pósthúsið Dalvegi

2011

Þarfaþing hefur lokið við innanhúsframkvæmdir á nýju pósthúsi á Dalvegi fyrir Íslandspóst.

Borgartún 26

2011

Landfestar hefur samið við Þarfaþing um lokafrágang 4.og 5. hæðar í Borgartúni 26. Þarfaþing sér um uppsetningu á milliveggjum, kerfisloftum og glerveggjum.

Vodafone

2010

Þarfaþing hefur nú lokið vinnu við standsetningu nýrrar verslunar Vodafone í Kringlunni.

Nova Kringlunni

2010

Þarfaþing hefur lokið vinnu við stækkun Nova í Kringlunni.

Adidas

2010

Þarfaþing hefur nú lokið við breytingar á verslaun Adidas í Kringlunni.

Morgunblaðshúsið

2010

Þarfaþing sá um breytingar innanhús í Morgunblaðshúsinu.

Fiskkaup

2010

Þarfaþing hefur nú lokið við frágang innanhús í húsnæði Fiskkaupa að Fiskislóð 8.

Sjónvarpshúsið Laugavegi

2010

Þarfaþing sá um að skipta út gluggum í Sjónvarpshúsinu við Laugarveg 176. Verkkaupi er Landic Property.

Hrafnista Das G-álma

2009

Þarfaþing er nú að leggja lokahönd á endurnýjun á G-álmu í Hrafnistu Dvalarheimili aldraðra við Laugarás. Um er að ræða endurnýjun á allri álmunni.Stækkun herbergja, setustofum, baðherbergjum ofl.

Pro Optik Kringlunni

2008

Þarfaþing sá um stækkun og allar breytingar í verslaun Pro Optik í Kringlunni.

Flensborgarskóli

2009

Þarfaþing hefur nú lokið við að klára þriðja og síðasta áfanga í Flensborgarskóla. Þetta er lokaáfanginn á þriggja ára verkefni sem Þarfaþing hefur verið að vinna að í Flensborgarskóla fyrir Fasteignir Ríkisjóðs.  Í þessum síðasta áfanga eru kennslustofur,efnafræðistofa, heimilisfræðistofa ofl. Verkefnið hefur gengið sérlega vel og í góðu samstarfi við stjórnendur skólans og Fasteignir Ríkisjóðs. Öllum áföngum hefur verið skilað á umsömdum tíma.

B&S Kringlunni

2009

Þarfaþing vinnur nú við að standsetja nýja verslun fyrir B&S, eða Boss og Sand í Kringlunni.

Hrafnista Das

2009

Þarfaþing hefur nú lokið við endurbætur í A- og E-álmu Hrafnistu, Dvalarheimili aldraðra Laugarási og er nú að hefja endurbætur í G- álmu. Um er að ræða algjöra endurnýjun á álmunni.  Fyrirhuguð verklok eru í lok febrúar 2009.

Kello Kringlunni

2008

Þarfaþing hefur nú lokið við að skipta um front í versluninni Kello í Kringlunni.

Flensborgarskóli

2008

Þarfaþing er nú að leggja lokahönd á síðasta áfanga Flensborgarskóla. Í áfanganum eru kennslustofur,efnafræðistofa,heimilisfræðistofa og fl.

Humac Kringlunni

2008

Þarfaþing vinnur nú að uppbyggingu nýrrar verslunar fyrir Humac sem er umboðsaðili Apple á Íslandi. Þarfaþing sér um flest alla verkþætti þ.e málningarvinnu,pípulagnir,dúkalögn,vélsmíði og trésmíði.

Kringlan stigagangur

2008

Þarfaþing hefur nú nýlokið við nýsmíði á svölum Kringlukráarinnar ásamt lítilsháttar lagfæringum innandyra, s.s. flísalögn.

Cafe Blau Kringlunni

2008

Þarfaþing sá um nýsmíði og fullkláraði svalir við Cafe Bleu í Kringlunni.

Kringlan stigagangur

2008

Þarfaþing sá um breytingar við inngang Kringlunnar á 2.hæð við Hagkaup.

Útibú Kaupþings í borgartúni

2008

Þarfaþing kom að mörgum stórum verkþáttum í breytingu höfuðstöðva Kaupþings Banka í Borgartúni, aðallega þáttum sem snúa að trésmíði.

Herragarðurinn Smáralind

2007

Þarfaþing sá um allar breytingar í verslun Herragarðsins í Smáralind.

Zara Kringlunni

2007

Þarfaþing sá um breytingar á verslauninni Zara í Kringlunni.

Evans Smáralind

2007

Þarfaþing sá um ýmsa verkþætti í Evans Smáralind,s.s front verslunarinnar.

Warehouse Smáralind

2007

Þarfaþing sá um ýmsa verkætti í verslauinni Warehouse í Smáralind.

Hagkaup Holtagörðum

2006

Í Hagkaupum Holtargörðum kom Þarfaþing að ákveðnum verkþáttum í snyrtivörudeild, þjónustuborði og kaffihorni ásamt því að setja upp glerfronta fyrir ýmsar smáverslanir í búðinni.

Joe Boxer Kringlunni

2006

Þarfaþing kom að ýmsum verkþáttum í Joe Boxer Kringlunni.

Jói Fel Holtagörðum

2007

Hjá Jóa Fel í Holtagörðum sáu menn Þarfaþings um heildarframkvæmdir og skiluðu fullkláruðu húsnæði.

Hreiðrið Kringlunni

2007

Þarfaþing sá um alla verkþætti í breytingum á Hreiðrinu í Kringlunni.

Topshop Smáralind

2006

Þarfaþing kom að ýmsum verkþáttum í Top Shop Smáralind.

Debenhams Smáralind

2006

Þarfaþing kom að breytingum í plássi Boss og Sand í Debenhams Smáralind.
Lyfja Smáralind

2006

Þarfaþing kom að gerð verslaunar Lyfju í Smáralind.

Útilíf Smáralind

2006

Þarfaþing sá um að standssetja nýja verslaun Útilífs í Smáralind.

Flensborgarskóli

2006

Þarfaþing var lægst í útboði í Flensborgaraskóla í Hafnarfirði. 1. áfanga á innri frágangi var lokið í ágúst 2006.

Kringlan

2006

Þarfaþing sá um endurgerð á gangi 2.hæð í Kringlunni.

Skaftahlíð 24, hús 365 miðla

2006

Þarfaþing vann að endurbótum í Skaftahlíð 24, húsi 365 miðla.

Skóverslunin Aldo Kringlunni

2005

Í nóvember 2005 tók Þarfaþing að sér smíði glugga fronta í versluninni Aldo Kringlunni. Hönnuðir glugga frontsins er Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar.

The Shoe Studio Kringlunni

2005

Þarfaþing sá um alla uppsetningu á innréttingum í Café Konditori Copenhagen í Kringlunni.

Whistles Kringlunni

2005

Í október 2005 var tískuverslunin Whistles opnuð í Kringlunni. Þarfaþing sá um alla verkþætti í því verki, hvort heldur sem var trésmíði, rafmagn, málning, uppsetningu innréttinga eða smíði á stálvirki fyrir framhlið verslunarinnar.

All Saints Kringlunni

2005

Í október 2005 var tískuverslunin , All Saints opnuð í Kringlunni Þarfaþing sá um alla verkþætti í því verki, hvort heldur sem var trésmíði, rafmagn, málning, uppsetningu innréttinga eða smíði á stálvirki fyrir framhlið verslunarinnar.

The Shoe Studio Kringlunni

2005

Í ágústmánuði 2005 var tískuverslunin , The Shoe Studio opnuð í Kringlunni Þarfaþing sá um alla verkþætti í því verki, hvort heldur sem var trésmíði, rafmagn, málning, uppsetningu innréttinga eða smíði á stálvirki fyrir framhlið verslunarinnar.

Warehouse Kringlunni

2005

Í ágústmánuði 2005 var tískuverslunin Warehause opnuð í Kringlunni Þarfaþing sá um alla verkþætti í því verki, hvort heldur sem var trésmíði, rafmagn, málning, uppsetningu innréttinga eða smíði á stálvirki fyrir framhlið verslunarinnar.

101 Skuggahverfi

2004

Í júlí 2004 vann Þarfaþing að ýmsum verkum í íbúðum í 101 Skuggahverfi.

Adidas Kringlunni

2003

Árið 2003 sá Þarfaþing um alla vinnu vegna uppsetningu á versluninni Adidas í Kringlunni, innréttingar, glerveggi ofl.

Islandia Kringlunni

2002

Í nóvember 2002 setti Þarfaþing upp nýja framhlið í versluninni Islandia í Kringlunni.